Ungliðahreyfing Samstöðu – Stjórn
Ungliðahreyfing SAMSTÖÐU var stofnuð í húsnæði SAMSTÖÐU að Kleppsmýrarvegi 26. apríl sl. Kosið var um samþykttir félagsins, sjá hér, og til stjórnar. Stjórn hreyfingarinnar er þannig skipuð:
Hallgeir Jónsson, formaður
Jón Reginbald Ívarsson
Ingibjörg Viktoría Hafsteinsdóttir
Svafar Helgason
Andri Þorvaldsson
Ungliðahreyfingin á eftir að koma sér saman um nafn félagsins en heitir til bráðabrigða Ungliðahreyfing SAMSTÖÐU. Meginhlutverk hennar er að vera samviska og hreyfiafl flokksins auk þess að virkja ungt fólk til áhuga og þátttöku til mótunar samfélagsins. Áhugasömum er bent á að hafa samband við formann með því að skrifa á hallgeir@xc.is
