Stjórn SAMSTÖÐU í Kraganum hefur sent frá sér svohljóðandi yfirlýsingu:
Yfirlýsing:
Stjórn SAMSTÖÐU í Kraganum krefst þess að verðtryggð húsnæðislán verði leiðrétt nú þegar og að verðtrygging verði afnumin af lánum heimilanna. Þetta er eðlileg og réttmæt krafa fyrir fjölskyldur landsins.
Það er ólíðandi að brýnustu mál heimilanna séu sífellt kæfð í umræðum um jafnvel dægurþras eða pólitísk bitbein. Búið er að leggja fram leiðir til lausna hvað varðar þessi mál og krefst stjórn SAMSTÖÐU í Kraganum þess að þær lausnir verði skoðaðar af alvöru og valin verði leið til lausna í eitt skipti fyrir öll. Einnig er mikilvægt að fá úr því skorið sem fyrst hvort verðtrygging á neytendalánum sé ólögleg eins og Hagsmunasamtök heimilanna hafa haldið fram.
Fjölmörg heimili landsins eru tæknilega gjaldþrota og sjá einungis fram á versnandi stöðu verði ekkert að gert. Nýleg skýrsla Hagfræðistofnunar um áhrif lækkunar höfuðstóls húsnæðislána sýnir ekki hvað það kostar samfélagið þegar heimilin hrökkva upp af hvert af öðru. Skýrslan sýnir heldur ekki hvað aðgerðarleysi stjórnvalda hefur kostað hingað til. Skýrslan er einungis enn einn illa skrifaði leikþátturinn sem hefur þann tilgang að sannfæra fólk um að það sé ekki þess virði að bjarga heimilum landsins. Stjórn SAMSTÖÐU í Kraganum telur aftur á móti að björgun þeirra sé algjört forgangsmál.
Hver vika sem líður með áframhaldandi aðgerðarleysi er samfélaginu allt of dýr. Það er óásættanlegt að seinustu mánuðir kjörtímabilsins fari að miklu leyti í að koma gæluverkefnum þingflokkana í gegnum þingið án þess að tekið sé á vanda fjölskyldna landsins. Ef ríkisstjórn Íslands treystir sér ekki til þess að taka á þessu mikilvægasta máli heimilanna þá krefst stjórn SAMSTÖÐU í Kraganum þess að ríkisstjórnin biðjist strax lausnar og boði til kosninga.

Stjórn SAMSTÖÐU í Kraganum á stofnfundi aðildarfélagsins sem haldinn var á Fjörkránni í Hafnarfirði 17. apríl sl.
Stjórn SAMSTÖÐU í Kraganum
Birgir Örn Guðjónsson, formaður.
Vilhjálmur Bjarnason, gjaldkeri.
Dagný María Sigurðardóttir, ritari.
Ingifríður R. Skúladóttir, meðstjórnandi.
Kristján Jóhann Matthíasson, varamaður, meðstjórnandi
