Fyrir hönd undirbúningshópsins sem lagði drög að skipulagi og stefnu nýs stjórnmálaflokks undir nafninu SAMSTAÐA – flokkur lýðræðis og velferðar vil ég þakka öllum stuðningsmönnum okkar frábærar móttökur! Afar fjölmennur félagsfundur á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku og 21% fylgi í skoðanakönnun á fylgi stjórnmálaflokka lofar góðu um framhaldið. Ljóst er að SAMSTAÐA svarar kalli margra kjósenda um endurnýjun í íslenskum stjórnmálum.
Framundan er mikið starf við að kynna SAMSTÖÐU á landsbyggðinni, stofna aðilarfélög í hverju kjördæmi og útfæra stefnumál í einstökum málaflokkum í samræmi við grunngildi flokksins og inntak grundvallarstefnuskrárinnar. Í febrúar verða haldnir fundir á Selfossi, Egilsstöðum, Akureyri og Ísafirði. Nú þegar hafa verið myndaðir málefnahópar og geta félagar sem greitt hafa félagsgjöld skráð sig í þá á heimasíðunni www.xc.is. Hópsstjórar munu síðan hafa samband við áhugasama félaga til að tilkynna fundarstað og tíma. Við hvetjum þá sem vilja senda okkur hugmyndir, ráðleggingar og fyrirspurnir að gera það í gegnum tölvupóstfangið samstada@xc.is.
SAMSTAÐA – flokkur lýðræðis og velferðar er lýðræðissinnuð stjórnmálahreyfing sem mun hafa bæði siðferðileg og samfélagsleg gildi að leiðarljós við mótun markmiða og leiða til úrlausna. Siðferðilegu gildin er réttlæti, mannúð og heiðarleiki. Samfélagsgildin eru jöfnuður, samvinna og sjálfbærni. Við skilgreinum okkur hvorki til hægri né vinstri heldur leggjum áherslu á nýja hugsun í stjórnmálum. Hægri flokkar leggja áherslu á markaðslausnir á meðan vinstriflokkar líta til ríkisins við lausn vandamála. Á Íslandi eru allir flokkar orðnir markaðshyggjuflokkar og miðjan því þar á meðal. SAMSTAÐA leggur áherslu á að hér þróist blandað hagkerfi, þar sem opinber, samvinnu- og einkarekstur dafni á viðeigandi sviðum.
SAMSTAÐA vill koma hér á réttlátu og lýðræðislegu samfélagi með auknum jöfnuði, öflugu velferðarkerfi og heilbrigðu atvinnulífi. Létta verður á skuldabyrði heimila og lítilla og meðalstórra fyrirtækja til að hjól atvinnulífsins fari að snúast. Eitt helsta verkefni aðila vinnumarkaðarins og stjórnmálamanna er að tryggja að laun á vinnumarkaði og framlög til þeirra sem treysta á velferðarkerfið dugi til framfærslu. SAMSTAÐA berst fyrir samfélagi þar sem frjáls félagasamtök leika mikilvægt hlutverk í viðskiptum og framkvæmd félagslegrar þjónustu og valdssvið héraðsþinga og sveitarfélaga er mikið. Þetta ásamt beinu lýðræði, þjóðaratkvæðagreiðslum og atvinnulýðræði færir völdin til fólksins.
Nú er það kjósenda að meta hvaða flokki og fólki það treystir til að raungera slíka framtíðarsýn. Við í undirbúningshópnum hlökkum til að eiga gott samstarf við alla þá sem telja sig eiga samleið með áherslum og framtíðarsýn okkar.
Lilja Mósesdóttir,
formaður SAMSTÖÐU.
